433

Vonar að Arnar sé eini Íslendingurinn á þessari skoðun - „Er það kannski ástæðan?“

Mynd
Mynd: DV/KSJ

„Arnar var vonandi eini Íslendingurinn á þeirri skoðun,“ sagði sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni um þau ummæli Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara að hann væri sáttur með jafntefli við Eisland í C-deild Þjóðadeildarinnar í gær.

Þetta var annað jafnteflið við Eistland í þessum landsleikjaglugga, en Ísland vann Lúxemborg og Búlgaríu einnig og er á toppi riðilsins, auk þess að hafa haldið hreinu í þremur af fjórum leikjum. Frammistaðan gegn Eistum hefur þó valdið vonbrigðum.

„Við héldum hreinu í 270 mínútur. En nú ætla ég að spyrja ykkur um eitt, nefnið einn sóknarmann í þessum þremur liðum. Það getur það enginn, er það kannski ástæðan fyrir að við erum að halda hreinu á móti þessum ömurlega lélegu liðum?“ sagði Kristján Óli enn fremur í Þungavigtinni.

Mikael Nikulásson segir eðlilegt að Arnar hafi fagnað stigi í gær. 

„Auðvitað er hann í skýjunum með þennan leik því jafntefli var eins og sigur, við áttum að tapa þessum leik. Og þetta þýðir líklega það að við vinnum þennan riðil. En við erum að fá eitt mark á okkur (í þessum fjórum leikjum) út af því að við erum með góðan markmann. Varnarleikurinn fannst mér ekki góður í þessari undankeppni,“ sagði Mikael.

„Ef við værum í B-deild værum við með 2-4 stig með þessari frammistöðu. Þá væri allt vitlaust hérna,“ sagði Mikael einnig.