Kveðjuleikur Lionel Messi með argentínska landsliðinu gegn Benín varð ekki aðeins tilfinningaþrunginn heldur einnig pólitískur.
Fyrir leikinn faðmaði Messi Fabio Santana, fyrrum hermann sem tók þátt í Falklandseyjastríðinu árið 1982. Santana söng argentínska þjóðsönginn og var vafinn fána með skilaboðunum „Las Malvinas son Argentinas“ – eða „Falklandseyjar eru argentínskar“.
Svipuð skilaboð sáust víða á Estadio Monumental, þar sem stuðningsmenn héldu uppi borðum og fánum með kröfu Argentínu til eyjanna.
Messi stóð á vellinum ásamt þremur sonum sínum á meðan þjóðsöngurinn var fluttur og var andrúmsloftið afar tilfinningaþrungið. Lionel Scaloni landsliðsþjálfari sást meðal annars fella tár.
Falklandseyjar hafa verið undir breskri stjórn frá 1833, en Argentína gerir enn tilkall til þeirra. Íbúar eyjanna kusu árið 2013 með yfirgnæfandi meirihluta að áfram tilheyra Bretlandi.
Pólitísk skilaboð tengd Falklandseyjum hafa áður valdið deilum á stórmótum og FIFA hefur reglur sem banna pólitísk skilaboð á leikjum.