433

Ótrúlegt atvik náðist á myndband - Blindfullur ökumaður flúði af vettvangi

Mynd

Álex Sola, leikmaður spænska B-deildarfélagsins Almería, er sagður hafa flúið af vettvangi eftir harðan árekstur að morgni sunnudags. 

Atvikið átti sér stað í Almería um klukkan 7:20 að staðartíma. Samkvæmt fyrstu upplýsingum missti Sola stjórn á BMW-bifreið sinni, fór yfir hringtorg og lenti í rangri akstursstefnu áður en hann ók á að minnsta kosti þrjá kyrrstæða bíla. 

Myndband sem tekið var úr nálægu húsi virðist sýna Sola leita í bílnum sínum áður en hann hleypur af vettvangi. Tveir aðrir voru sagðir hafa verið í bílnum og yfirgáfu þeir einnig staðinn. 

Lögregla hafði síðar uppi á Sola og lét hann gangast undir öndunarpróf. Samkvæmt fréttum mældist hann um þrefalt yfir leyfilegum mörkum. 

Hinn 27 ára gamli leikmaður var síðar látinn laus og bíður nú hraðmeðferðar fyrir dómi vegna gruns um ölvunarakstur.