Konstantinos Tzolakis, markvörður Hull, er orðaður við Liverpool eftir góða byrjun hans í ensku úrvalsdeildinni.
Þessi 23 ára gamli Grikki hefur vakið mikla athygli með Hull og er sagður kosta um 40 milljónir punda. Tottenham ku einnig hafa áhuga á honum.
Liverpool horfir til Tzolakis sem mögulegs arftaka Alisson Becker, en varamarkvörðurinn Giorgi Mamardashvili ku ekki hafa sannað að hann sé tilbúinn í að taka við hlutverki Brasilíumannsins.
Tzolakis gekk í raðir Hull frá Olympiacos í heimalandinu í sumar en gæti það farið svo að hann stoppi aðeins í eitt tímabil hjá nýliðunum.