433

Mbappe sagður ósáttur hjá Real og vilja burt næsta sumar - Sagður stefna á Anfield

Mynd
Getty Images

Liverpool er sagt hafa endurvakið áhuga sinn á Kylian Mbappé, sóknarmanni Real Madrid, út frá sögusögnum um að Frakkinn gæti yfirgefið spænska stórveldið næsta sumar.

Spænski blaðamaðurinn Francois Gallardo heldur því fram að Mbappé sé ósáttur og vonsvikinn hjá Real Madrid og hafi þegar ákveðið að fara frá félaginu sumarið 2027.

Samkvæmt Gallardo er Liverpool fyrsti kostur leikmannsins fari hann til Englands.

„Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Kylian Mbappé, en forgangskostur leikmannsins er Liverpool,“ sagði Gallardo.

Hann bætti við að Liverpool hafi þegar haft samband við Fayza Lamari, móður og umboðsmann Mbappé, á síðustu vikum.

Mbappé hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og skorað átta mörk í átta leikjum í La Liga og Meistaradeildinni.

Kaupverðið yrði þó gríðarlegt. Talið er að Real Madrid myndi krefjast á bilinu 200 til 250 milljóna evra fyrir hinn 27 ára gamla framherja.

Slík upphæð myndi slá félagaskiptamet ensku úrvalsdeildarinnar, en enn sem komið er eru engar staðfestar viðræður milli félaganna.