Framtíð JJ Gabriel hjá Manchester United er enn í óvissu en líkurnar á að hann fari til félags á meginlandi Evrópu virðast aukast.
Samkvæmt Sky Sports News hafa Gabriel og fjölskylda hans ekki tekið endanlega ákvörðun og eru ekki að flýta sér.
Real Madrid og Barcelona eru sögð hafa mikinn áhuga á hinum 16 ára leikmanni, á meðan Paris Saint-Germain og Bayern München fylgjast einnig náið með stöðunni.
Gabriel varð 16 ára á þriðjudag, en frá þeim aldri mega evrópsk félög semja við hann um atvinnumannasamning. Hann á jafnframt möguleika á að sækja um evrópskt vegabréf í gegnum foreldra sína.
Sky Sports greindi frá því fyrr í vikunni að Manchester United gæti gripið til lögfræðilegra aðgerða ef Gabriel gengur til liðs við félag í Evrópu.
Það er þó ekki sagt valda Gabriel eða fjölskyldu hans sérstökum áhyggjum á meðan þau meta næstu skref.