433

FC Bayern skoðar mjög óvæntan markvörð

Mynd
Getty Images

Bayern München hefur áhuga á Nick Pope, markverði Newcastle United, og gæti reynt að fá hann til félagsins í janúar.

Samkvæmt TeamTalk fylgist þýska stórveldið náið með stöðu hins enska markvarðar, en félagið er þegar farið að undirbúa tímann eftir Manuel Neuer.

Neuer er orðinn 41 árs og Bayern telur Jonas Urbig vera líklegan arftaka hans sem aðalmarkvörð liðsins til framtíðar.

Pope er hins vegar sagður koma til greina sem reynslumikill varamarkvörður og samkeppni við Urbig.

Pope hefur verið hjá Newcastle frá árinu 2022 eftir að hafa komið frá Burnley og hefur verið mikilvægur hluti af liði félagsins undanfarin ár.

Ekki liggur fyrir hvort Newcastle sé tilbúið að selja Pope í janúar eða hversu hátt verð félagið myndi setja á markvörðinn.