433

Fallið ekki endalok hjá Val: Miklar breytingar tóku á - Ánægja með störf Matthíasar

Mynd

Valur féll úr Bestu deild kvenna á dögunum og leikur því í næstefstu deild næsta sumar í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Í Bestu mörkunum á Sýn Sport var farið ítarlega yfir stöðuna á Hlíðarenda og þær ákvarðanir sem teknar hafa verið undanfarin misseri. Mist Rúnarsdóttir sagði meðal annars að stefna félagsins hefði verið „galin“ og að of margir reynslumiklir leikmenn hefðu verið látnir fara á skömmum tíma.

Samkvæmt heimildum 433.is er þó meira á bak við brotthvarf nokkurra lykilmanna en fram kom í umræðunni.

Katie Cousins átti í viðræðum við Val en setti fram kröfu um riftunarákvæði í samningi sínum sem félagið var ekki tilbúið að samþykkja. Natasha Anasi yfirgaf heldur ekki Val vegna launamála heldur vegna búsetu sinnar á Reykjanesi og löngunar til að spila nær heimili sínu.

Valsliðið var yngt mikið upp fyrir tímabilið en félagið varð einnig fyrir miklum skakkaföllum rétt fyrir mót. Berglind Rós Ágústdóttir og Anna Rakel Pétursdóttir duttu báðar út vegna óléttu, sem veikti hópinn enn frekar.

Þá fóru reyndir leikmenn frá félaginu, Arnar Sif Ásgrímsdóttir sem var besti leikmaður Þór/KA á liðnu tímabili flutti aftur heim á Akureyri eftir síðasta tímabil og saknaði Valur hennar mikið. Elísa Viðarsdóttir vildi burt og fór Í Breiðablik, fleiri slík dæmi eru til staðar. 

Þrátt fyrir fallið ríkir mikil ánægja með störf Matthíasar Guðmundssonar innan Vals og staða hans sem þjálfara er örugg samkvæmt heimildum 433.is.

Valsmenn eru sagðir afar vonsviknir með niðurstöðuna en alls ekki af baki dottnir. Markmiðið er skýrt, að vinna sér sæti í Bestu deildinni aftur strax næsta sumar.