Tonda Eckert, stjóri Southampton, hefur verið úrskurðaður í sex vikna skilorðsbundið bann frá knattspyrnu vegna njósna um andstæðinga sína á síðustu leiktíð.
Bannið tekur aðeins gildi ef hann kemur aftur að sambærilegum njósnum fyrir lok næstu leiktíðar. Hinn 33 ára gamli Eckert þarf þá að greiða 28 þúsund punda sekt.
Southampton var vísað úr umspili Championship-deildarinnar í vor og fékk fjögurra stiga frádrátt á þessari leiktíð eftir að félagið viðurkenndi að hafa njósnað um æfingar Oxford, Ipswich og Middlesbrough. Óháð nefnd komst að þeirri niðurstöðu að Eckert hefði heimilað njósnirnar.
Eckert hefur beðist afsökunar og sagðist ekki hafa vitað að slíkar njósnir væru bannaðar.