433

Eignir hans metnar á 135 milljarða - Hvað tekur við nú þegar endalokin nálgast?

Mynd

Lionel Messi kvaddi argentínska landsliðið með tilfinningaþrungnum hætti í vikunni en framtíð hans eftir knattspyrnuferilinn virðist þegar vera vel skipulögð.

Hinn 39 ára Messi hefur byggt upp umfangsmikið viðskiptaveldi samhliða ferlinum og er auður hans sagður nema um 830 milljónum punda.

Messi hefur sjálfur sagt að viðskiptaheimurinn heilli sig.

„Viðskipti eru eitthvað sem vekur áhuga minn. Mig langar að halda áfram að læra því ég veit mjög lítið og er rétt að byrja,“ sagði Messi á America Business Forum á síðasta ári.

Mynd
Messi er í stuði eftir að hann flutti til Miami.

Fjárfestingar í fótbolta

Messi hefur á undanförnum árum aukið fjárfestingar sínar í knattspyrnufélögum. Hann á hlut í spænska félaginu UE Cornella, sem leikur í fimmtu deild, og einnig í CD Eldense.

Árið 2025 stofnaði Messi svo félagið Deportivo LSM í Úrúgvæ ásamt Luis Suarez, fyrrum samherja sínum hjá Barcelona. Félagið hefur þegar unnið sér sæti í þriðju efstu deild þar í landi.

Þá á Messi möguleika á að eignast hlut í Inter Miami þegar hann leggur skóna endanlega á hilluna. Talið er að hann vilji á næstu árum byggja upp net knattspyrnufélaga víða um heim.

Mynd
Messi og Antonella.

Hótelveldið

Messi fór fyrst inn á hótelmarkaðinn árið 2017 þegar hann keypti MiM Sitges-hótelið skammt frá Barcelona.

Síðan þá hefur hótelasafnið vaxið hratt og telur nú sex boutique-hótel. Þau eru meðal annars staðsett á Ibiza, Mallorca og í Andorra.

Hótelin eru rekin í samstarfi við Majestic-hótelhópinn og Melia Hotels.

Mynd
Sergio Ramos og Lionel Messi / Getty Images

Fasteignir og veitingastaðir

Fjölskylda Messi hefur einnig komið að fasteignaverkefnum í Rosario, heimaborg hans í Argentínu.

Þar er meðal annars verið að þróa 24 íbúða verkefni við Paraná-fljótið.

Messi hefur einnig fjárfest í argentínsku veitingastaðakeðjunni El Club de la Milanesa. Áform eru um að opna fleiri staði á Spáni, meðal annars í Castelldefels.

Mynd
Getty Images

Stórir styrktarsamningar

Messi heldur jafnframt áfram að þéna gríðarlega á auglýsinga- og styrktarsamningum.

Adidas hefur gert ævilangan samning við Argentínumanninn sem er sagður geta verið metinn á allt að einn milljarð Bandaríkjadala.

Hann hefur einnig samstarf við Stanley, sem framleiðir drykkjarílát, og kemur Messi sjálfur að hönnun og útfærslu á vörum fyrirtækisins.

Mynd
Getty Images

Risaveldi sem heldur áfram að vaxa

Forbes mat auð Messi fyrr á þessu ári á um 1,1 milljarð Bandaríkjadala, eða um 830 milljónir punda.

Tekjur hans koma því orðið úr mun fleiri áttum en bara fótboltanum.

Þótt knattspyrnuferlinum sé að ljúka virðist ljóst að Messi mun áfram vera áberandi í fótboltaheiminum og viðskiptalífinu um ókomin ár.