433

Áfram halda breytingar hjá Chelsea - Lykilmaður á bak við tjöldin semur um starfslok

Mynd

Laurence Stewart, annar íþróttastjóri Chelsea, er á leið frá félaginu eftir að samkomulag náðist um starfslok hans.

Stewart gekk til liðs við Chelsea frá Monaco árið 2022 og hefur unnið náið með Paul Winstanley, sem einnig gegnir stöðu íþróttastjóra hjá félaginu.

Samkvæmt heimildum Daily Mail er ekki um neinn ágreining að ræða innan félagsins heldur sé brottför Stewart hluti af breytingum á stjórnskipulagi knattspyrnudeildarinnar.

Ekki hefur enn verið ákveðið nákvæmlega hvenær Stewart lætur af störfum en hann var samningsbundinn Chelsea til ársins 2031.

Ekki er talið að Chelsea ætli að ráða beinan arftaka hans. Winstanley mun þess í stað starfa enn nánar með Joe Shields, Sam Jewell og Dave Fallows.

Stewart hefur áður starfað hjá Monaco, Red Bull og Manchester City.

Hann var hluti af stjórnendateymi Chelsea þegar liðið vann Heimsmeistarakeppni félagsliða árið 2025 með 3-0 sigri á Paris Saint-Germain í úrslitaleiknum.