433

Valtýr og Þórhallur forviða eftir heimsókn í Laugardalinn - „Okkur sem þjóð til háborinnar skammar“

Mynd
Valtýr Björn.

Valtýr Björn Valtýsson og Þórhallur Dan Jóhannsson fóru hörðum orðum um aðstöðu og aðbúnað fyrir fjölmiðlafólk á Laugardalsvelli í þættinum Mín skoðun.

Þeir voru saman á landsleik Íslands og Búlgaríu á laugardag þar sem Ísland vann 3-0, en sögðu að aðstaðan fyrir fréttamenn hefði verið afar slæm.

„Ég ætla að byrja á byrjuninni. Fréttamannaaðstaðan, í alvöru. Ég fór fram og bað þessa yndislegu verði sem voru á ganginum. Það var kaffi þarna fyrir leik en ekkert meira. Kaffið var búið í hálfleik og engin mjólk. Bara vatn,“ sagði Valtýr Björn.

Hann sagði að þetta væri sérstaklega slæmt í ljósi þess að erlendir fjölmiðlamenn væru einnig viðstaddir landsleiki Íslands.

„Aðstaðan sem þeim var boðið upp á er til háborinnar skammar, og okkur sem þjóð. KSÍ, til háborinnar skammar. Þetta atriði verður þú að hafa í lagi.“

Valtýr rifjaði upp að á öðrum nýlegum landsleik hefði aðbúnaðurinn verið litlu betri.

„Um daginn var eitthvað súkkulaði og samlokur. Það var leikurinn við Eistland. Þessi aðstaða er hræðileg. Sætin eru hræðileg, hvað þá veitingarnar. Ég hef farið á marga leiki erlendis og hef aldrei orðið vitni að svona fyrir fréttamenn.“

Þórhallur Dan tók undir gagnrýnina og sagði upplifunina hafa komið sér mikið á óvart.

„Ég var gestur þinn á þessum leik og það kom mér rosalega á óvart hversu illa var haldið utan um blaðamenn þarna.“

Hann gagnrýndi sérstaklega vinnuaðstöðuna.

„Við erum búin að strauja þennan völl tvisvar. Sætin fyrir blaðamenn, þú gast varla sest við borðin þarna. Að það sé ekki hægt að útbúa þetta þannig að blaðamenn geti haft það þokkalegt.“