433

Telur að Guardiola líði mjög illa þessa dagana

Mynd

Stephen Appiah, fyrrum samherji Pep Guardiola hjá Brescia, segir að fjármálamálið í kringum Manchester City muni taka verulega á Guardiola.

City var fundið sekt um alvarleg brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar vegna mála sem ná aftur til áranna 2009 til 2018. Félagið neitar sök og hefur áfrýjað niðurstöðunni.

Guardiola, sem yfirgaf City eftir síðasta tímabil eftir áratug hjá félaginu, hefur lýst yfir fullum stuðningi við sína fyrrum vinnuveitendur.

„Ég held að fólk vanmeti hversu ákafur Pep er,“ sagði Appiah við SunSport.

„Hann er þannig manneskja að þegar vandamál kemur upp vill hann leysa það strax. Hann vill ekki ganga um með slæma tilfinningu.“

Appiah segir að Guardiola muni taka gagnrýni á afrek sín hjá City mjög nærri sér.

„Hann verður ekki sáttur við að fólk dragi það sem hann hefur gert í efa. Miðað við hvernig ég þekki hann mun hann færa fjöll til að komast til botns í þessu.“

Guardiola vann sex Englandsmeistaratitla með City og stýrði félaginu einnig til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2023.

Ekkert bendir til þess að Guardiola sjálfur hafi komið að meintum fjármálabrotum félagsins.