Íslenska karlalandsliðið gerði aftur jafntefli við Eistland í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Leikurinn var lokaður og lítið um færi. Heimamenn virkuðu lengi vel líklegri til að skora en Ísland var líklegra á lokakaflanum.
Markalaust jafntefli varð þó niðurstaðan og íslenska liðið er með 8 stig á toppi riðilsins þegar tveir leikir eru eftir.
Eistland er með 6 stig í öðru sæti, Búlgaría í því þriðja með 4 og Lúxemborg rekur lestina með 3.
Fjögurra leikja landsleikjaglugga Íslands er nú lokið. Sigrar á Búlgaríu og Lúxemborg og tvö jafntefli við Eistland niðurstaðan.
Hér að neðan eru einkunnir leikmanna Íslands.
Hákon Rafn Valdimarsson - 7 - Maður leiksins
Lokaður leikur en Hákon gerði sannarlega sitt þegar við þurftum á honum að halda. Frábær gluggi hjá Hákoni.
Guðlaugur Victor Pálsson - 4
Í mun sóknarsinnaðra hlutverki en venjulega og byrjaði leikinn mjög vel. Það dró hins vegar mjög af honum þegar á leið og hann átti sendingar sem komu okkur í vandræði.
Stefán Teitur Þórðarson - 5
Var shaky á köflum en reddaði okkur líka eftir mistök liðsfélaga.
Hörður Björgvin Magnússon - 4
Virkaði óöruggur, ekki sannfærandi frammistaða.
Daníel Leó Grétarsson - 5
Var að spila út úr stöðu lengi vel en fannst hann koma með ró í hjarta varnarinnar, sína stöðu, þegar hann var færður í seinni hálfleik.
Mikael Neville Anderson - 4
Sást afskaplega lítið til hans.
Gylfi Þór Sigurðsson - 5
Meiðsli virtust klárlega stríða Gylfa í leiknum en okkar hættulegustu stöður komu eftir góð föst leikatriði hans.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 5
Reyndi ítrekað að reyna að finna leiðir í gegnum Eistana en það var erfitt í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson - 4
Hákon náði ekki að setja mark sitt á leikinn og virkaði þreyttur eftir fjóra leiki í þessum glugga.
Andri Lucas Guðjohnsen - 5
Kom gjarnan neðar á völlinn til að reyna að koma hreyfingu á hlutina en ekki mjög áberandi.
Orri Steinn Óskarsson - 4
Ekki leikur eða frammistaða sem hentar Orra vel í fremstu víglínu.
Varamenn
Brynjólfur Willumsson - 5
Logi Tómasson - 4