433

Segir vandamál United ekki vera að félagið kaupi ekki dýrustu mennina - Segir þetta stæra vandamál

Mynd

Danyal Khan, fréttamaður Sky Sports, segir ekkert benda til þess að Manchester United veigri sér við að greiða háar upphæðir fyrir leikmenn.

Rætt hefur verið um hvers vegna United hafi ekki keypt leikmann fyrir meira en 100 milljónir punda, en Khan telur þá tölu ekki segja alla söguna.

„Ég held að það sé úrelt að nota 100 milljónir punda sem viðmið. Ef Paul Pogba væri keyptur frá Juventus í dag myndi hann líklega kosta vel yfir 100 milljónir,“ sagði Khan.

Hann segir United hafa viljað bæta þremur miðjumönnum við hópinn í sumar. Félagið skoðaði einnig Lewis Hall og Myles Lewis-Skelly áður en athyglin beindist aftur að miðjunni.

Carlos Baleba var meðal þeirra sem United skoðaði ásamt Youri Tielemans og Andrey Santos.

Khan segir stærra vandamál félagsins vera leikmannasölur.

„Það verður ekki undirstrikað nógu mikið: Manchester United selur leikmenn einfaldlega ekki nógu vel.“

Að hans sögn snerist sumarið því frekar um að breikka leikmannahópinn en að eyða allri fjárhæðinni í eina stórstjörnu.