Cristiano Ronaldo er sagður hafa ákveðið að snúa ekki aftur í portúgalska landsliðið á meðan Jorge Jesus er landsliðsþjálfari.
Ronaldo var ósáttur eftir að hafa verið skilinn eftir á varamannabekknum í 2-1 sigri Portúgals gegn Noregi þann 27. september. Þetta var í fyrsta sinn á 18 ára landsliðsferli hans sem hann var ónotaður varamaður.
Í kjölfarið mætti Ronaldo ekki á þrjár æfingar og yfirgaf landsliðshópinn áður en verkefninu lauk. Hann hélt til Spánar með einkaflugvél og tók því ekki þátt í síðustu tveimur leikjum Portúgals í landsleikjaglugganum.
Jorge Jesus hefur síðan sagt opinberlega að dyrnar standi Ronaldo opnar og að hann geti snúið aftur í hópinn. Portúgalski blaðamaðurinn Rui Santos segir hins vegar að Ronaldo hafi misst traust á þjálfaranum og muni ekki gefa kost á sér á meðan Jesus er við stjórnvölinn.
Jesus tók við portúgalska landsliðinu í sumar og hefur farið vel af stað. Portúgal hefur unnið alla fjóra leiki sína undir hans stjórn.
Staðan setur portúgalska knattspyrnusambandið í erfiða stöðu enda Ronaldo, sem er 41 árs, einn besti og sigursælasti leikmaður í sögu landsliðsins.