433

Piers Morgan uppljóstrar því hvað gerðist á bak við tjöldin - „Fuck you, fór upp í flugvél og yfirgaf hópinn“

Mynd
Morgan ásamt Cristiano Ronaldo

Piers Morgan segir að Cristiano Ronaldo hafi yfirgefið portúgalska landsliðshópinn vegna þess að landsliðsþjálfarinn Jorge Jesus hafi ítrekað svikið loforð sem hann gaf Ronaldo um hlutverk hans í liðinu.

Morgan, sem tók frægt viðtal við Ronaldo þegar hann yfirgaf Manchester United, segir að málið snúist fyrst og fremst um virðingu.

„Þetta hefur ekkert með peninga, frægð eða neitt slíkt að gera. Hann fékk algjörar tryggingar um hvernig hann yrði notaður,“ sagði Morgan.

Samkvæmt Morgan hafði verið samið um að Ronaldo myndi spila fyrstu tvo leiki landsleikjagluggans en fá síðan hvíld í næstu tveimur.

„Í fyrsta leiknum var honum sagt að hann fengi 90 mínútur, en svo er hann tekinn af velli eftir 67 mínútur og hann verður auðvitað pirraður.“

Morgan segir Jesus hafa beðist afsökunar í kjölfarið en síðan farið allt aðra leið opinberlega.

„Svo gerir hann hið gagnstæða og gerir eins og Ten Hag. Hann fer út og reynir að gera lítið úr Ronaldo og niðurlægja hann, setja hann aftur á sinn stað og segir að allir leikmenn séu mikilvægir.“

Ronaldo var síðan beðinn um að vera tilbúinn að spila um 30 mínútur gegn Noregi, þrátt fyrir að upphaflega hafi staðið til að hvíla hann.

„Hann hitar upp í 25 mínútur en kemur aldrei inn á völlinn. Hann varð pirraður yfir virðingarleysinu og því að þjálfarinn stóð ekki við orð sín.“

Morgan segir þetta hafa verið dropann sem fyllti mælinn.

„Fyrir Ronaldo snýst þetta um virðingu. Honum er lofað einu og svo gerist hið gagnstæða. Að lokum sagði hann einfaldlega: fuck you, fór upp í flugvél og yfirgaf hópinn.“

Ronaldo er nú kominn aftur til æfinga hjá Al-Nassr en óvíst er hvort hann spili aftur fyrir Portúgal undir stjórn Jesus.