433

Óvissa með ástandið í Sádí Arabíu fyrir HM - Uppbygging leikvanga í tómu tjóni

Mynd

Áform Sádi-Araba um einn glæsilegasta leikvang HM 2034 virðast vera komin í uppnám.

Um er að ræða fyrirhugaðan NEOM-leikvang sem átti að rísa sem hluti af The Line, risavöxnu framtíðarborgarverkefni landsins. Leikvangurinn átti meðal annars að vera í um 350 metra hæð frá jörðu.

Samkvæmt upplýsingum frá MEED, sem sérhæfir sig í framkvæmdaverkefnum í Mið-Austurlöndum, hefur vinnu við leikvanginn verið frestað og engin dagsetning er lengur skráð fyrir verklok.

Talið er að um tveir milljarðar punda hafi tengst verkefninu og gæti því verið um verulegt fjárhagslegt högg að ræða.

Sádi-Arabía undirbýr sig fyrir HM 2034 með umfangsmiklum framkvæmdum. Alls á að byggja eða endurbæta 15 leikvanga í fimm borgum fyrir mótið.

Vandræðin með NEOM-leikvanginn vekja nú spurningar um hvort allar fyrirhugaðar framkvæmdir verði tilbúnar í tæka tíð fyrir heimsmeistaramótið.