Íslenska U-21 árs landslið karla hefur farið á kostum í síðustu leikjum og sigur á Færeyjum í kvöld tryggði sæti í umspili um sæti á EM næsta sumar.
Ísland þurfti að vinna og treysta á að Sviss myndi ekki vinna Frakka til að hoppa upp fyrir Svisslendinga og í annað sæti undanriðilsins.
Það fór svo að Frakkar unnu 7-1 og íslenska liðið vann á sama tíma 0-2 í Færeyjum með mörkum frá Benoný Breka Andréssyni og Daníel Tristan Guðjohnsen.
Það kemur í ljós á föstudag hvaða liði Ísland mætir í umspili um sæti á EM, sem fer fram í Albaníu og Serbíu næsta sumar.