„Það er gott að halda hreinu. Þetta var erfiður leikur við erfiðar aðstæður. Mér fannst vera aðeins meiri orka í þeim. Þeir komu sér í ágætis stöður í nokkrum skyndisóknum. En þetta er fínasta stig á nokkuð erfiðum útivelli. Við erum í góðum málum í riðlinum og hlökkum til næsta glugga,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson við Sýn Sport eftir markalaust jafntefli Íslands við Eistland í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þetta var annað jafnteflið við Eista á nokkrum dögum, en í millitíðinni vann íslenska liðið Búlgaríu og Lúxemborg.
„Varnarleikurinn var mjög fínn í þessum glugga, fáum eitt mark á okkur. Því miður skoruðum við ekki í dag. Kannski vantaði upp á gæði eða hreyfingar.“
Gylfi staðfesti jafnframt að hann væri búinn að spila rifbeinsbrotin síðustu vikur.
„Staðan á mér er ágæt. Það eru komnar einhverjar fimm vikur en engin hvíld og mikið af æfingum. Ég held að ég fái smá frí frá Víkingunum til að jafna mig. Þetta þarf að fá að gróa. Vonandi jafnar þetta sig nokkuð fljótt og ég næ síðustu 1-2 leikjunum (í Bestu deildinni).
Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland. Maður bara sprautar sig fyrir leiki og dílar við það daginn eftir,“ sagði Gylfi við Sýn Sport.