Manchester City gæti misst stóran hluta leikmannahópsins ef áfrýjun félagsins vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar ber ekki árangur og félagið verður fellt niður um deild.
Breska blaðið The Sun fékk gervigreind til þess að spá fyrir um hvert leikmenn City gætu farið ef til slíks fjöldaflótta kæmi.
Samkvæmt spánni myndi Real Madrid hagnast mest. Erling Haaland er þar sagður líklegur til að fara til spænska stórveldisins, auk Phil Foden, Enzo Fernández, Ayyoub Bouaddi, Abdukodir Khusanov, Vitor Reis, Josko Gvardiol og Mateo Kovacic.
Manchester United myndi einnig nýta sér stöðuna vel og fá fimm leikmenn City samkvæmt spánni: Gianluigi Donnarumma, Elliot Anderson, Nico O’Reilly, Matheus Nunes og Rico Lewis.
Liverpool er sagt geta sótt Marc Guehi, Antoine Semenyo, Ruben Dias og Rayan Ait-Nouri á meðan Jeremy Doku færi til Arsenal.
Spáin í heild sinni:
- Gianluigi Donnarumma – Manchester United
- Marc Guehi – Liverpool
- Elliot Anderson – Manchester United
- Ayyoub Bouaddi – Real Madrid
- Enzo Fernández – Real Madrid
- Rayan Cherki – Paris Saint-Germain
- Phil Foden – Real Madrid
- Jeremy Doku – Arsenal
- Antoine Semenyo – Liverpool
- Erling Haaland – Real Madrid
- Geronimo Rulli – Real Sociedad
- Marcus Bettinelli – Chelsea
- Ruben Dias – Liverpool
- Abdukodir Khusanov – Real Madrid
- Vitor Reis – Real Madrid
- Josko Gvardiol – Real Madrid
- Nico O’Reilly – Manchester United
- Rayan Ait-Nouri – Liverpool
- Matheus Nunes – Manchester United
- Rico Lewis – Manchester United
- Mateo Kovacic – Real Madrid
- Iliman Ndiaye – Everton
- Allan – Palmeiras
Rétt er að taka fram að listinn er eingöngu spá gervigreindar og byggir ekki á staðfestum viðræðum milli félaganna.