433

Arsenal með norskan landsliðsmann undir smásjá - Gætu gert tilboð í janúar

Mynd
Antonio Nusa Getty Images

Arsenal er sagt undirbúa tilboð í norska landsliðsmanninn Antonio Nusa, sem leikur með RB Leipzig í Þýskalandi.

Samkvæmt London Standard ætla forráðamenn Arsenal að leggja fram fyrsta tilboð upp á 34 milljónir punda í hinn 21 árs gamla kantmann.

Leipzig er hins vegar ekki sagt tilbúið að selja Nusa fyrir þá upphæð og vill þýska félagið fá í kringum 55 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Nusa hefur vakið töluverða athygli með frammistöðu sinni og er Arsenal langt frá því að vera eina enska félagið sem fylgist með stöðu hans.

Tottenham, Newcastle United og Aston Villa hafa öll verið orðuð við norska landsliðsmanninn og gæti því skapast hörð samkeppni um undirskrift hans.

Arsenal hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að bæta ungum og efnilegum leikmönnum við leikmannahóp sinn og virðist Nusa vera næsta nafn á óskalistanum.