433

Arnar gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu - Gylfi kemur aftur inn

Mynd
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd: DV/KSJ

Arnar Gunnlaugsson gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn við Eistland ytra í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Um annan leik liðanna í keppninni er að ræða en leikur þeirra í Laugardalnum á dögunum fór 1-1, sem voru mikil vonbrigði af hálfu Íslands.

Síðan hafa Strákarnir okkar hins vegar unnið örugga sigra á Lúxemborg og Búlgaríu og geta þeir styrkt stöðu sína á toppi riðilsins með sigri í kvöld.

Þeir Guðlaugur Victor Pálsson, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Andri Lucas Guðjohnsen koma inn fyrir Aron Einar Gunnarsson, Mikael Egil Ellertsson, Andra Fannar Baldursson, Jón Dag Þorsteinsson, Arnór Sigurðsson

Leikurinn hefst klukkan 18:45 á íslenskum tíma.

Byrjunarlið Íslands
Hákon Rafn Valdimarsson

Guðlaugur Victor Pálsson
Stefán Teitur Þórðarson
Hörður Björgvin Magnússon
Daníel Leó Grétarsson

Mikael Neville Anderson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Gylfi Þór Sigurðsson
Hákon Arnar Haraldsson

Orri Steinn Óskarson
Andri Lucas Guðjohnsen