Antonio Conte segist vilja taka við félagi sem hefur misst sjónar á eigin sögu, orð sem hafa vakið athygli í tengslum við Manchester United.
Conte er án starfs eftir að hafa yfirgefið Napoli í sumar en Michael Carrick, stjóri United, er þegar undir pressu eftir slaka byrjun á tímabilinu.
„Það eru mörg félög sem hafa að einhverju leyti glatað tengslunum við sögu sína. Mig langar að fara til eins slíks félags, dusta rykið af sögunni og láta hana skína á ný,“ sagði Conte við The Athletic.
Hann bætti við að hann vilji starfa hjá félagi þar sem pressa sé til staðar og markmiðið sé að berjast um titla, ekki bara taka þátt.
Manchester United hefur ekki orðið Englandsmeistari frá árinu 2013.
Conte hefur hins vegar unnið deildartitla með Juventus, Chelsea, Inter og Napoli á ferlinum og því þykja ummæli hans áhugaverð í ljósi stöðunnar á Old Trafford.