433

Viðtal við Heimi vekur mikla athygli - Breytir það reglunum til frambúðar?

Mynd
Getty Images

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, vill að UEFA komi í veg fyrir að Írland og Ísrael geti dregist saman í keppnum sambandsins eftir fjaðrafok síðustu daga.

Mikil spenna hefur verið í kringum tvo leiki þjóðanna í Þjóðadeildinni síðustu daga. Írar unnu fyrri leikinn 3-0 en liðin gerðu 1-1 jafntefli í Serbíu um helgina. Báðir leikir fóru fram á hlutlausum völlum.

Írska liðið neitaði meðal annars að taka í hendur Ísraela fyrir leikina og leikmenn báru sorgarbönd til minningar um þau sem hafa látið lífið í átökunum á Gasa. Þá komu upp nokkur atvik í kringum leikina og aðstoðarmaður Heimis sakaði ísraelskan leikmann til að mynda um að hafa hrækt á sig í hálfleik í gær. UEFA bíður skýrslna dómara og eftirlitsmanns áður en ákveðið verður hvort málið verði tekið lengra.

Einnig þurfti að slíta blaðamannafundi í aðdraganda seinni leiksins eftir þungar ásakanir ísraelsks blaðamanns í garð leikmanna Írlands.

Heimir segir síðustu vikur hafa tekið mikið á írska hópinn og aðspurður kveðst hann telja eðlilegt að UEFA skoði hvort koma eigi í veg fyrir að þjóðirnar mætist í framtíðinni.

„Ég myndi ekki óska nokkru landsliði þess að ganga í gegnum það sem við höfum gengið í gegnum síðustu tvær vikur. Kannski þarf UEFA einfaldlega að grípa inn í og gera eitthvað,“ sagði Heimir og benti á að það lægi augum uppi að mikill stuðningur væri í garð Palestínu í Írlandi.

Írska knattspyrnusambandið hafði reyndar þegar óskað eftir því við UEFA að þjóðirnar yrðu ekki dregnar saman í framtíðinni. UEFA hafnaði þeirri beiðni og sagði ástæðuna vera að Írland og Ísrael hefðu aldrei átt í beinum átökum sín á milli. UEFA heldur nú þegar nokkrum þjóðum aðskildum þegar dregið er í riðla og leiki af pólitískum ástæðum.