Leikmannamarkaðurinn gæti farið á hliðina ef Manchester City tapar áfrýjun sinni í fjárhagsmálinu gegn ensku úrvalsdeildinni.
ESPN fjallar ítarlega um mögulegar afleiðingar og bendir á að leikmannahópur City sé metinn á um 1,22 milljarða punda samkvæmt Transfermarkt. Ef félagið yrði dæmt til falls eða jafnvel útilokað úr úrvalsdeildinni gætu margar af stærstu stjörnum þess farið á markað á sama tíma.
City hefur áfrýjað niðurstöðu óháðrar nefndar og hafnar ásökununum. Engin endanleg refsing hefur því verið ákveðin.
ESPN bendir á að fjárhagslegt högg vegna falls yrði gríðarlegt. City fékk tæplega 249 milljónir punda í verðlauna- og sjónvarpstekjur úr úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni á síðasta tímabili, á meðan félög í Championship fá aðeins brot af þeirri upphæð úr sjónvarpssamningi deildarinnar.
Launakostnaður City var rúmlega 408 milljónir punda árið 2024/25 og er talinn enn hærri í dag.
Það gæti þýtt að félagið yrði að selja leikmenn á borð við Erling Haaland, Gianluigi Donnarumma, Rayan Cherki, Marc Guehi, Elliot Anderson og Enzo Fernandez.
Vandamálið fyrir City væri að kaupendur vissu af neyð félagsins. Það gæti þrýst kaupverði verulega niður.
Fyrrverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá úrvalsdeildarfélagi sagði ESPN að City gæti jafnvel þurft að greiða hluta launa leikmanna áfram til að losna við þá.
Þá hefur lögmaðurinn Paul Gilroy KC sagt að leikmenn gætu mögulega reynt að rifta samningum sínum ef þeir teldu City hafa brotið gegn grundvallartrausti í ráðningarsambandinu.
Slíkt væri þó flókið lagalega og alls ekki sjálfgefið.
Ef stór hluti leikmannahóps City yrði skyndilega fáanlegur gæti það því skapað fordæmalausa stöðu á evrópska leikmannamarkaðnum.