Gennaro Gattuso, fyrrverandi landsliðsmaður Ítalíu og núverandi þjálfari Lazio, hefur greint frá því að hann hafi glímt við sjálfsofnæmissjúkdóm í um 15 ár.
Albert Guðmundsson, landsliðsmaður Íslands, gekk í raðir Lazio á dögunum.
Gattuso, sem er 48 ára, hætti að spila atvinnufótbolta árið 2013 og segir veikindin hafa átt stóran þátt í þeirri ákvörðun.
„Ég hef tekið kortisón í 15 ár,“ sagði Gattuso á Festival dello Sport í Trento.
„Það eru einstaklingar með sama sjúkdóm og ég sem þurfa að liggja í rúminu í fjóra eða fimm mánuði í senn vegna þess að þeir geta ekki hreyft sig.“
Gattuso vildi ekki gefa upp nákvæmlega hvaða sjúkdóm um ræðir en sagði daglega lyfjameðferð taka sinn toll.
„Ég hef sætt mig við veikindin og vinn með þau, en þetta kostar mig. Það er ekki auðvelt að taka kortisón á hverjum degi.“
Gattuso bætti við að hann myndi halda áfram „á meðan Guð gefur mér styrk“.