Luka Modric, fyrirliði Króatíu, segist hafa skammast sín í fyrsta sinn á tuttugu ára landsliðsferli eftir 7-0 tap gegn Englandi í Þjóðadeildinni um helgina.
Króatíska landsliðið var gjörsamlega niðurlægt á heimavelli en staðan var orðin 5-0 þegar hinn 41 árs gamli Modric fór af velli á 57. mínútu.
„Ég hef verið hér í tuttugu ár en í fyrsta sinn skammast ég mín eftir leik,“ sagði Modric.
„Þú getur tapað eða mætt liði sem er betra, og þeir eru það núna. En að tapa svona og kasta frá okkur orðsporinu sem við höfum byggt upp í gegnum árin er óásættanlegt. Þetta var hörmungarkvöld.“