433

Sér eftir því að hafa valið peningana sem Arsenal bauð - Segir Arteta vanta mannlega þáttinn

Mynd
Mynd/Getty

Willian, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Chelsea, hefur opnað sig um erfiðan tíma sinn hjá Arsenal og segir að hann hafi fljótlega séð eftir félagaskiptunum.

Brasilíumaðurinn gekk til liðs við Arsenal sumarið 2020 eftir sjö ár hjá Chelsea. Arsenal bauð honum þriggja ára samning, á meðan Chelsea vildi aðeins framlengja um tvö ár.

Willian segir Mikel Arteta hafa sannfært sig um að hann yrði lykilmaður.

„Arteta sagði við mig: Við ætlum að spila svona og ég vil að þú verðir aðalmaðurinn. Ég ætla að byggja liðið í kringum þig og gefa þér lykilinn að félaginu,“ sagði Willian í The Obi One Podcast.

En veruleikinn varð allt annar.

„Þremur mánuðum síðar sagði ég umboðsmanninum mínum að ég vildi fara og að ég hefði gert stór mistök með því að yfirgefa Chelsea.“

Willian segir að loforðin og væntingarnar sem hann fékk fyrir félagaskiptin hafi ekki endurspeglast í því sem hann upplifði hjá Arsenal.

„Ég varð strax svekktur. Þegar maður er ekki ánægður getur maður ekki staðið sig. Peningar geta ekki keypt hamingju. Þetta var besti samningur ferilsins míns en ég var ekki ánægður.“

Hann gagnrýndi einnig hugarfarið hjá Arsenal og sagði það hafa verið allt annað en hjá Chelsea.

Willian hrósaði Arteta sem knattspyrnuþjálfara en sagði hann hafa skort ákveðna mannlega nálgun.

„Hann er frábær þjálfari inni á vellinum en það vantaði smá upp á hvernig hann stjórnaði liðinu. Mannlegi þátturinn vantaði.“

Willian fór frá Arsenal eftir aðeins eitt tímabil og samningi hans var rift með gagnkvæmu samkomulagi.