Jonjo Shelvey, fyrrverandi leikmaður Liverpool, Swansea og Newcastle, hefur opnað sig um erfiðan tíma sinn í Tyrklandi þar sem hann þróaði með sér fíkn í svefnpilla.
Shelvey, sem er 34 ára og hættur að spila, segir að einmanaleiki og erfiðar aðstæður hafi haft mikil áhrif á sig eftir að hann fór til Caykur Rizespor árið 2023.
„Ég hafði val um að fara á bar og drekka fimm eða sex bjóra eða fara heim og taka svefnpillur til að sofna,“ sagði Shelvey við FourFourTwo.
Hann segir þolið hafa aukist hratt. „Í byrjun tók ég eina töflu og hún sló mig út. Svo dugði ein ekki lengur. Á einum tímapunkti tók ég sex eða sjö í einu til að sofna.“
Shelvey hefur áður sagt að neyslan hafi haft alvarleg áhrif á fjölskyldulífið.
„Ég tók þrjár eða fjórar töflur, vaknaði seinna og tók þrjár eða fjórar í viðbót. Þetta eyðilagði sambandið við börnin mín.“
Hann fékk hjálp eftir að hann sneri aftur til Englands og gekk til liðs við Burnley.
Shelvey hefur nú jafnað sig og er orðinn þjálfari Arabian Falcons í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.