433

Sagt að Halldór hafi valið sér aðstoðarmann á Hlíðarenda

Mynd

Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarmaður Halldórs Árnasonar hjá Val samkvæmt frétt Fótbolta.net.

Eins og flestir vita tekur Halldór við karlaliði Vals eftir tímabil, en þetta verður hans fyrsta starf í þjálfun frá því hann var látinn fara frá Breiðabliki í fyrra, innan við ári eftir að hafa gert liðið að Íslandsmeisturum.

Mynd
Mynd/Helgi Viðar

Oliver lék undir stjórn Halldórs hjá Breiðabliki og þekkjast þeir því vel. Hann þjálfaði Augnablik í sumar.

Tímabilið hjá Val hefur verið langt undir væntingum. Hermann Hreiðarsson var látinn fara sem þjálfari fyrr í sumar og Chris Brazell tók við út tímabilið.