433

Reiðir út í enska landsliðið vegna meðferðarinnar

Mynd
Getty Images

Forráðamenn Bournemouth eru ósáttir við hvernig enska landsliðið meðhöndlaði meiðsli Alex Scott, sem gæti nú verið frá keppni í allt að átta vikur.

Scott fann fyrir meiðslum í læri fyrir 7-0 sigur Englendinga gegn Króatíu en spilaði engu að síður 70 mínútur. Þessi 23 ára gamli miðjumaður hefur nú dregið sig úr landsliðshópnum og gæti verið lengi frá.

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að engin áhætta hafa verið tekin. Scott hafi æft að fullu, fengið grænt ljós frá læknateyminu og sjálfur sagst geta spilað allan leikinn gegn Króatíu.

Forráðamenn Bournemouth eru hins vegar sagðir pirraðir þar sem starfslið enska landsliðsins vissi að Scott fyndi fyrir óþægindum fyrir leikinn.

Scott hefur byrjað feril sinn með landsliðinu frábærlega og Tuchel hrósað honum í hástert.