Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales, er allt annað en sáttur við nýtt landsleikjafyrirkomulag UEFA og segir það hagnast stærri knattspyrnuþjóðum.
Wales tapaði 1-0 gegn Danmörku í Þjóðadeildinni í gær og hefur þar með tapað þremur af fjórum landsleikjum sínum á aðeins tíu dögum. Í fyrsta sinn voru landsleikjagluggarnir í september og október sameinaðir og fjórir leikir spilaðir í einum glugga.
„Fjórir leikir á þessu stigi. Fyrir hinar þjóðirnar, við vitum hverjar þær eru því ég var í herberginu þegar þær kusu allar með þessu. Ég var einn þeirra sem gerði það ekki því við vitum að þetta er algjörlega okkur í óhag,“ segir Bellamy.
Landslið Wales hefur glímt við mikil meiðsli en Karl Darlow, Joe Rodon, Dylan Lawlor og Harry Wilson misstu af öllum fjórum leikjunum. David Brooks heltist svo úr lestinni eftir fyrsta leikinn.
Bellamy segir minni þjóðir einfaldlega ekki hafa sömu breidd og þær stærstu til að skipta út leikmönnum milli fjögurra leikja, hvað þá þegar meiðsli banka upp á.
„Ég held að þetta fyrirkomulag sé hannað fyrir elítuna,“ segir hann enn fremur.