Manchester United stendur frammi fyrir töluverðu meiðslaveseni fyrir mikilvægan leik gegn Tottenham um næstu helgi.
Michael Carrick þarf að meta stöðu allt að níu leikmanna eftir landsleikjagluggann. Marcus Rashford og Kobbie Mainoo drógu sig úr enska landsliðshópnum en Rashford hefur þó sést á ferðinni á ný og gæti verið orðinn leikfær.
Patrick Dorgu sneri heim úr danska landsliðinu eftir meiðsli, Noussair Mazraoui meiddist með Marokkó og Bruno Fernandes missti af einum leik Portúgals vegna meiðslavandræða.
Benjamin Sesko glímir áfram við þrálát sköflungsmeiðsli og er ólíklegur til að byrja gegn Tottenham. Amad gæti hins vegar snúið aftur eftir að hafa verið frá síðan fyrir fyrsta leik tímabilsins.
Þá dró Karl Darlow sig úr landsliðshópi Wales og Tom Heaton er enn frá vegna aftanlærismeiðsla.
United hefur því í mörg horn að líta fyrir leikinn á Old Trafford.