433

Mikill áhugi á enska boltanum í Bandaríkjunum eftir HM - Athyglisvert hvaða lið laðar flesta að skjánum

Mynd
Getty Images

Áhugi ungra Bandaríkjamanna á ensku úrvalsdeildinni hefur aukist mikið eftir að Bandaríkin voru gestgjafi HM í sumar.

Áhorf á úrvalsdeildina meðal Bandaríkjamanna á aldrinum 18 til 34 ára hefur aukist um 20 prósent frá síðustu leiktíð samkvæmt tölum Nielsen Sports.

Að meðaltali hafa um hálf milljón manna horft á leiki deildarinnar á NBC og USA Network á tímabilinu, sem er þriggja prósenta aukning.

Rúmlega ein milljón horfði á 2-0 sigur Newcastle á Tottenham í ágúst og hefur enginn leikur fengið meira áhorf vestanhafs. Tottenham hefur raunar verið þátttakandi í þremur af þeim sex leikjum sem hafa fengið mest áhorf í Bandaríkjunum.