433

Lögreglan þurfti að skerast í leikinn eftir gáleysislegan akstur stjörnunnar

Mynd
Getty Images

Jordan Pickford, markvörður Everton og enska landsliðsins, hefur játað gáleysislegan akstur eftir atvik í Knutsford í apríl.

Samkvæmt lögreglu ók Pickford Lamborghini Urus-bifreið sinni út á aðalgötu án þess að virða biðskyldu og neyddi tvo ökumenn til að hemla snögglega til að forðast árekstur.

Lögreglumaður hóf þá eftirför með blikkandi ljósum og sírenum. Hann sagðist hafa verið kominn upp í um 50 mílur á klukkustund á vegi þar sem hámarkshraðinn er 30, en Pickford hafi samt verið að fjarlægjast.

Pickford stöðvaði að lokum bílinn og var kærður fyrir akstur án nægilegrar aðgæslu.

Hann játaði brotið á netinu síðasta föstudag en óskaði eftir að mæta fyrir dómara til að leggja fram málsbætur sínar.

Pickford mætir fyrir dóm í Chester 7. desember. Brotið getur varðað þremur til níu punktum eða tímabundinni sviptingu ökuréttinda.