Liverpool og Chelsea hafa bæst í hóp þeirra félaga sem hafa áhuga á Murillo, varnarmanni Nottingham Forest. Football Insider greinir frá þessu.
Þessi 24 ára gamli Brasilíumaður hefur verið einn besti leikmaður Forest undanfarin ár og Liverpool sér hann sem mögulegan framtíðarmann í miðvarðarstöðuna. Chelsea hefur einnig fylgst lengi með honum.
Forest vill hins vegar alls ekki að selja Murillo í janúar. Hann skrifaði undir langtímasamning við félagið á síðasta ári og Forest er því í sterkri samningsstöðu.
Manchester United hefur einnig áhuga á Murillo og gæti því orðið hart barist um hann næsta sumar. Forest myndi þá fara fram á háa upphæð fyrir Brasilíumanninn.