433

Jesus opnar dyrnar fyrir Ronaldo - Endurkoma í kortunum eftir öll lætin

Mynd
Getty Images

Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, segir Cristiano Ronaldo velkominn aftur í landsliðið þrátt fyrir að stórstjarnan hafi yfirgefið síðasta landsliðsverkefni eftir deilur við þjálfarann.

Ronaldo yfirgaf herbúðir Portúgals eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Noregi og misst af þremur æfingum. Hann fór síðan af landi brott og lék ekki með liðinu gegn Danmörku.

Portúgal hefur engu að síður unnið þrjá leiki í röð án hans en Jesus útilokar alls ekki endurkomu fyrir næsta landsliðsglugga.

„Ef Cris er að spila og vill vera í landsliðinu, af hverju ekki?“ sagði Jesus.

Hann sagði málið hafa verið misskilning og að hægt væri að leysa það ef báðir aðilar settust niður og ræddu saman.

Leikmenn Portúgals hafa einnig lýst yfir stuðningi við Ronaldo. Nuno Mendes sagði að hópurinn væri sameinaður og að Ronaldo yrði alltaf tekið opnum örmum.

Joao Cancelo tók í sama streng og sagði Ronaldo enn vera fyrirliða, táknmynd landsliðsins og besta leikmann sem Portúgal hefði átt.

Bruno Fernandes hefur þegar rætt við Ronaldo og hvatti til þess að málið yrði leyst á bak við luktar dyr.

Framtíð Ronaldo með landsliðinu er því enn opin, þó hann eigi jafnframt yfir höfði sér mögulegt agabann vegna brottfararinnar úr landsliðshópnum.