Alex Scott, miðjumaður Bournemouth og enska landsliðsins, hefur dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla framan á læri og gæti verið frá keppni í allt að tvo mánuði.
Scott, sem er 23 ára, fékk sitt fyrsta byrjunarliðstækifæri með Englandi gegn Króatíu á laugardag eftir að hafa áður komið inn af bekknum gegn Tékklandi.
Hann lék í 70 mínútur gegn Króatíu en var sagður hafa spilað þrátt fyrir verki frá eldri meiðslum. Meiðslin versnuðu síðan í leiknum og snýr hann nú aftur til Bournemouth í frekari skoðun.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hrósaði Scott mikið eftir leikinn.
„Fyrsta byrjunarliðstækifærið og þvílík byrjun. Hann er mjög mjúkur á boltanum og ákvarðanatakan er á hæsta stigi,“ sagði Tuchel og kallaði Scott „heildarpakkann“.
Scott hafði ákveðið að halda áfram að spila í landsliðsglugganum til heiðurs afa sínum, sem lést nokkrum dögum fyrir landsliðsfrumraun hans.
Bournemouth er sagt óánægt með þróun mála enda gæti félagið misst einn af lykilmönnum sínum í nokkrar vikur.