433

Chelsea í sterkari stöðu en United - Verðmiðinn gæti hækkað

Mynd
Alex Scott Getty Images

Chelsea er talið standa betur að vígi en Manchester United í kapphlaupinu um Alex Scott, miðjumann Bournemouth og enska landsliðsins.

Chelsea reyndi að kaupa hinn 23 ára gamla Scott í sumar og var fleiri en einu tilboði félagsins hafnað. Talið er að Chelsea hafi boðið yfir 60 milljónir punda.

United hefur einnig fylgst lengi með Scott en gekk ekki svo langt að bjóða í hann í sumar. Félagið hefur enn áhuga en Chelsea er líklegri áfangastaður sem stendur, sér í lagi ef horft er til fyrri tilboða.

Talið er að Arsenal og Liverpool gætu bæst í hóp áhugasamra og samningsstaða Bournemouth verður því hugsanlega ansi sterk í janúar eða næsta sumar.