433

Bíða eftir frekari fréttum af ástandinu á Haaland

Mynd
Getty Images

Manchester City bíður nú spennt eftir frekari tíðindum af Erling Haaland eftir að norski framherjinn haltraði af velli í 2-1 tapi gegn Portúgal í Þjóðadeildinni á sunnudagskvöld.

Haaland gaf merki um miðjan síðari hálfleik að hann vildi fara af velli og gekk síðan sjálfur út af án aðstoðar.

Tímasetningin er óheppileg fyrir City, sem heimsækir Liverpool um næstu helgi í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar.

Haaland hefur verið í frábæru formi í upphafi tímabils og skorað sjö mörk í jafn mörgum leikjum fyrir City. Hann lék jafnframt alla fjóra leiki Noregs í Þjóðadeildinni á aðeins tíu dögum og skoraði meðal annars gegn Danmörku og Portúgal.

Ekki liggur enn fyrir hversu alvarleg meiðslin eru.

City hefur þegar þurft að glíma við önnur meiðsli í landsliðsverkefninu en Nico O’Reilly yfirgaf enska landsliðshópinn vegna meiðsla.

Haaland hefur annars verið afar duglegur að halda sér heilsuhraustum síðustu misseri. Á síðasta tímabili missti hann aðeins af einum leik vegna smávægilegra meiðsla.

City vonast því til að þetta reynist ekki alvarlegt.