433

Ástarsamband á vinnustað skekur stærstu sjónvarpsstöð Bretlands - Fyrrverandi grunaði að maðkur væri í mysunni

Mynd

Sjónvarpsfólkið Kelly Cates og Mark Chapman, sem stýra Match of the Day á BBC ásamt Gabby Logan, eru sögð hafa tekið saman.

Cates, 51 árs, og Chapman, 52 ára, tóku við stærri hlutverkum í þættinum eftir brotthvarf Gary Lineker og hafa verið áberandi á skjánum undanfarin misseri. Nú herma breskir miðlar að samband þeirra hafi þróast frá samstarfi yfir í ástarsamband.

Málið hefur þó vakið athygli vegna ásakana frá Clere Collier, fyrrverandi kærustu Chapman. Hún hefur samkvæmt fréttum haldið því fram að samband Chapman og Cates hafi hafist áður en hún og Chapman hættu saman.

Mynd

Chapman hafnar því og fullyrðir að engin skörun hafi verið á samböndunum og að hann hafi verið Collier trúr meðan þau voru saman.

Chapman og Collier voru opinberlega saman þar til í apríl. Þau höfðu sést saman í Altrincham í janúar og samkvæmt fréttum skoðað mögulegt nýtt heimili. Collier hafði áður birt hlýlegar færslur um Chapman á samfélagsmiðlum.

Chapman var áður kvæntur Söru, eiginkonu sinni til 19 ára, en hún lést úr krabbameini árið 2020, aðeins 44 ára gömul. Þau eignuðust þrjú börn.

Cates, dóttir Liverpool-goðsagnarinnar Kenny Dalglish, var áður gift sjónvarpsframleiðandanum Tom Cates. Þau skildu árið 2021 eftir 14 ára hjónaband og eiga tvö börn.

Cates hefur áður talað opinskátt um að hún hafi átt erfitt með hugmyndina um að byrja aftur að fara á stefnumót eftir skilnaðinn.

Hvorki Cates né Chapman hafa enn tjáð sig opinberlega um fréttirnar af sambandinu.