Arsenal undirbýr formlegt tilboð í Breno Bidon, 21 árs gamlan miðjumann Corinthians og brasilíska landsliðsins.
Arsenal hefur fylgst með Bidon í tæpt ár en Corinthians er nú sagt tilbúið að hlusta á tilboð upp á rúmlega 20 milljónir punda.
Bidon hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað yfir hundrað leiki fyrir Corinthians og lék á dögunum sinn fyrsta A-landsleik fyrir Brasilíu undir stjórn Carlo Ancelotti.
Bidon hefur sjálfur talað um að það sé draumur sinn að spila í Evrópu og Meistaradeildinni. Arsenal mun reyna að ganga frá kaupunum áður en fleiri félög bætast við í kapphlaupið um leikmanninn.