Arsenal hefur farið skelfilega af stað í efstu deild kvenna á Englandi og er þegar tíu stigum á eftir toppliði Manchester City eftir aðeins fimm leiki.
Arsenal tapaði 4-2 gegn City í gær og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sjö leikjum sínum í öllum keppnum. Liðið er í tíunda sæti deildarinnar og hefur ekki unnið í fjórum deildarleikjum í röð, sem er versta hrina þess síðan 2023.
Skytturnar þá aðeins með fimm stig, en þetta er næstversta byrjun félagsins í sögu efstu deildar. Aðeins tímabilið 2014 hafði liðið fengið færri stig á þessum tímapunkti.
Pressan á Renee Slegers, stjóra Arsenal, er því orðin töluverð. Hún stýrði liðinu til sigurs í Meistaradeildinni árið 2025 en Arsenal vann engan titil á Englandi á síðustu leiktíð og hefur ekki orðið Englandsmeistari síðan 2019.