433

Viðbrögðin við mannlegum mistökum séu of hörð - „Skil ekki þetta endalausa fórnarlamba-væl“

Mynd
Mynd: Sigtryggur Ari

Helgi Fannar og Hörður Snævar ræddu helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á 433.is.

Óheppileg mistök hafa orðið hjá KSÍ í verðlaunaafhendingum að undanförnu. Gleymdist að afhenda 2. flokki kvenna hjá FH bikar fyrir að verða Íslandsmeistari og svo voru verðlaunapeningar hjá 3. flokki kvenna merktir 3. flokki karla. KSÍ hefur brugðist skjótt við í báðum tilfellum.

„Ég er reyndar með hugmynd, skrifa bara 3. flokkur, ekki karla eða kvenna, þá ertu búinn að tryggja þig gagnvart svona,“ sagði Helgi til að byrja með um málið.

Hörður segir ekki hægt að horfa framhjá því að um mannleg mistök sé að ræða.

„Auðvitað er óheppilegt að þetta gerist tvisvar í kvennaflokki. En þetta eru bara mannleg mistök og þetta endalausa fórnarlamba-væl, ég skil það ekki. Hringið bara í Eystein, Todda eða einhvern hjá KSÍ og segið að það hafi orðið mistök.

Ég held að það geti enginn sakað knattspyrnusambandið síðustu ár um að gera upp á milli kynja í einu eða neinu. Ég er ekkert stærsti stuðningsmaður KSÍ en mér finnst blasa við að mistökin eru mannleg,“ sagði hann.

Þátturinn er í spilaranum.