433

Varð yngsti markaskorari í sögu Bandaríkjanna - Nokkur ár síðan City keypti hann

Mynd
Cavan Sullivan Getty Images

Cavan Sullivan varð yngsti markaskorari í sögu bandaríska landsliðsins þegar liðið vann 3-0 sigur á Mexíkó í vináttulandsleik.

Sullivan var 17 ára og fimm daga gamall þegar hann skoraði með glæsilegri vippu á 62. mínútu leiksins og tvöfaldaði forystu Bandaríkjanna.

Hann sló þar með met Mathis Albert, sem hafði aðeins fimm dögum áður orðið yngsti markaskorari landsliðsins, 17 ára og 131 dags gamall.

„Þetta eru augnablikin sem maður dreymir um þegar maður er þriggja, fjögurra, fimm eða sex ára,“ sagði Sullivan eftir leikinn.

Hinn ungi miðjumaður leikur nú með Philadelphia Union í MLS-deildinni en stefnir á að ganga til liðs við Manchester City á næsta tímabili.

City tryggði sér réttinn á Sullivan árið 2024 þegar hann var aðeins 14 ára gamall.

Óvissa er þó um félagaskiptin vegna yfirstandandi mála Manchester City vegna brota á fjárhagsreglum.