Helgi Fannar og Hörður Snævar ræddu helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á 433.is.
Manchester City var á dögunum fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Deildin hefur staðfest niðurstöðuna en City heldur fram sakleysi sínu og hefur áfrýjað.
„Þetta gerist á þeim árum (2009-2018) sem þeir eru að verða stórlið. Allt þeirra veldi er byggt á svindli,“ sagði Helgi, áður en Hörður tók til máls.
„Manni heyrist að vörn City núna sé að það hafi ekki verið eigandi City sem borgaði þetta heldur ríkið. Ég skil bara ekki af hverju þau gögn hafi ekki verið lögð fram fyrr.
Það er ljóst að þetta er mikið áfall fyrir enska knatspyrnu í heild sinni, að sigursælasta félag síðustu 15-16 ára hafi verið byggt upp á svikamyllu,“ sagði hann.
„Þetta er bara svartur blettur á deildina. Það eru lið þarna í kring sem hafa bara verið að keppa á ójöfnum grundvelli,“ sagði Helgi.
„Eina sem ég sé, sem er ekki beint þeim til varnar, en félögin búa til þessar reglur fyrir einhverjum árum. Þau félög sem börðust fyrir þeim, og voru að einhverju leyti að verja sína stöðu, voru Arsenal, Manchester United, Liverpool og Chelsea.
Þau búa til reglurnar svo enginn geti komið inn og keppt við þau. Þarna reynir City að gera það og gerir það svo með svindli,“ sagði Hörður að endingu.
Ítarlegri umræða um málið er í þættinum, sem er í spilaranum.