Pep Guardiola er ólíklegur til að taka við enska landsliðinu í framtíðinni að mati blaðamannsins Guillem Balague.
Balague segir að Guardiola hafi verið raunhæfur kostur fyrir enska knattspyrnusambandið áður en Thomas Tuchel tók við liðinu. Hann heldur því fram að Guardiola hafi jafnvel látið sambandið bíða í tvo mánuði eftir ákvörðun sinni árið 2024 áður en hann ákvað að halda áfram hjá Manchester City.
Staðan hafi hins vegar breyst mikið í kjölfar fjárhagsmáls City.
„Ég held að enska sambandið vilji ekki ráða einhvern sem skiptir skoðunum fólks jafn mikið og Guardiola mun gera héðan í frá,“ sagði Balague við talkSPORT.
Manchester City hefur verið fundið sekt um fjölda brota á fjárhagsreglum en félagið hafnar allri sök og hefur áfrýjað niðurstöðunni.
Guardiola hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við félagið og eigendur þess.