Helgi Fannar og Hörður Snævar ræddu helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á 433.is.
Málefni Laugardalsvallar voru nokkuð til umræðu á dögunum í kringum útileik íslenska karlalandsliðsins við Lúxemborg í Þjóðadeildinni.
Þjóðarleikvangur Lúxemborgar tekur tæplega 10 þúsund manns í sæti, eins og Laugardalsvöllur, en er miklu nútímalegri og með öllu til alls.
„Hversu fokking lengi eigum við að þurfa að bíða eftir almennilegum velli?“ spurðu Hörður.
„Ég held það hafi bara lengt biðina að fá hybrid-grasið,“ benti Helgi á, en nýja grasið var lagt á í fyrra og voru þær framkvæmdir afar mikilvægar.
„Já, en menn voru bara komnir í holu og við urðum að fá það í gegn. Við erum á undanþágum með klefana. Skylmingasalurinn er orðinn hluti af klefunum með einhverjum tjöldum. Þetta er allt komið á tíma.
Það hlýtur að vera keppikefli fyrir stjórnmálamenn að vera sá sem fékk í gegn að fá sómasamlegar aðstæður fyrir leikmenn og áhorfendur,“ sagði Hörður.
Þátturinn er í spilaranum.