Crystal Palace hefur hafið viðræður við fulltrúa Ismaila Sarr um nýjan samning við félagið.
Samkvæmt fréttum hafa viðræðurnar gengið vel og andrúmsloftið verið gott, en enn er nokkuð í land áður en samkomulag næst.
Núverandi samningur hins 28 ára gamla Sarr gildir til sumarsins 2029 og Palace er því ekki undir mikilli pressu að ganga frá framlengingu strax.
Senegalski landsliðsmaðurinn vakti áhuga annarra félaga síðasta sumar. Galatasaray lagði fram tilboð í Sarr á meðan Liverpool var einnig sagt fylgjast með stöðu hans.
Crystal Palace vill hins vegar halda Sarr til lengri tíma og viðræðurnar um nýjan samning eru til marks um það.
Sarr gekk til liðs við Palace eftir að hafa áður leikið í ensku úrvalsdeildinni með Watford.